Tuesday, September 20, 2011

ræktar-ráð! woooohoooooOOoo

Eftir að ég ákvað að taka lifstílinn minn i gegn hef eg fengið meira áhuga á ræktinni! Ég er alltaf að spurja Ingþór að eitthverju og er alltaf að skoða eitthvað sniðugt á netinu sem tengist hreyfingu. Maður finnur endalaust af fitness tipsum en eg ætla að deila með ykkur þeim sem mer finnst virkilega meika sens, og þau sem ég fer eftir!

-STELPUR, þið viljið lyfta! Lyftingar minnka fituprósentuna og maður verður ekki massatröll af þvi að lyfta 4-5x i viku. Maður verður stinnari, tónaðir, grennri og hraustlegri! Þegar fituprósentan lækkar eykst grunnbrennsla þannig grennumst við fyrr! (og megum borða meira!!!)

-Talandi um brennslu.. Eg mæli með að brenna fyrripart dagsins, helst a morgnana þegar maður er ekki búin/n að borða mikið! Mæli með að fá sér eitthvað smá fyrir svo maður lendi ekki í blóðsykursfalli og byrjar að svima o.s.f. Ástæðan fyrir þessu er að maður brennir frekar fituforðanum (þvi maður er ekki buin að borða neitt að viti) heldur en kolvetnaforða dagsins. Eg veit að sumir fitness keppendur nota þessa aðferð og hentar þetta kannski betur fyrir þá sem eru með lága fituprósentu, þetta er mjög umdeilt og talið að þú getur tekið miklu betur þegar þú ert búin/n að borða.

-Hafðu brennsluæfingar og lyftingaræfingar á mismunandi tímum, ekki brenna i meira en 10-15 min og fara svo að lyfta. Líkaminn heldur að hann sé að fara að brenna (hlaupa o.s.f.) og leysir þvi fra hormón sem kemur í veg fyrir vöðvauppbyggingu!

-Alls ekki taka kviðæfingar á hverjum degi, kviðvöðvarnir eru eins og allir hinir vöðvarnir, þeir þurfa hvild! Það er nóg að taka þa 2-3 í viku og gera það þá almennilega, frekar en að taka smá a hverjum degi!

-Ekki vera lengur a lyftingaræfingum heldur en í klukkutima. Eftir 60 min af æfingum fer líkaminn að gefa fra ser stresshormón sem getur blokkað á testosterone-ið (sem fær vöðvana til að stækka).

-30 mín eftir æfingu er líkaminn mjög "varnarlaus" og er því stranglega bannað að fá sér fitu (innan hálftíma eftir að æfingu líkur). Fitan er líklegri til að setjast á líkamann heldur en að meltast. Ég mæli líka með að fá sér próteinshake eftir æfingar, ég er búin að ná miklu framförum bara með því að fá mér próteinshake eftir hverja æfingu. Svo er hægt að bæta við allskonar fæðubótaefnum. 

No comments:

Post a Comment