Cupcakes á laugardagskvöldi.
Mér leiddist í gærkvöldi og ákvað að baka.
Kökurnar urðu reyndar frekar ljótar því ég var ekki með kremsprautuna mína.

Vanillu cupcakes með vanillu smjörkremi:
1 og hálfur bolli af hveiti. 1 bolli sykur.1 og hálf tsk lyftiduft.1/2 tsk salt.8 msk af mjúku ósöltuðu smjöri.1/2 bolli sýrður rjómi.1 egg.2 eggjarauður.1-2 tsk vanilludropar.
Blandað saman öllum þurrefnunum, svo er restin hrærð útí.. Hrærið vel þangað til deigið er orðið mjúkt og fínt.
Bakast við 170 gráður í sirka 20-25 min, fer eftir stærðinni. Ég geri alltaf eina prufu cupcake áður en ég geri allar til að sjá hvort þær verði fallegar og hvað deigið lyftist mikið.

Vanillusmjörkremið:
Ósalt íslenskt smjör
Heill flórsykurpakki
Vanilludropar
Hrærið smjörið í hræirvél þangað til það er orðið mjúkt og flöffí, svo bætið útí flórsykrinum smátt og smátt á meðan hræirvélin er í gangi. Bætið út í vanilludropum eftir smekk, ég set alltaf soldið mikið 4-5 tsk. Ef kremið á í erfiðleikum með að verða fallegt mæli ég með að handþeyta það.

No comments:
Post a Comment