Guten TAG ♥♥♥
Elskulegu vinkonur mínar eru að koma til mín í kvöld, við ætlum að borða saman og fara svo á skrallið! Sem ég hef ekki gert í heilar 8 vikur útaf átakinu, þessi vika er búin að vera semi off í matarræðinu, ætla að fagna góðum árangri í kvöld og detta svo aftur í góða lífstílinn!! EN, ég bakaði svokallaða kökupinna eða cake pops fyrir stelpurnar, er alltaf að sjá þetta á netinu og ákvað að prófa. Þetta tókst ekki alveg jafn vel eins og ég hefði viljað en þetta er sjúklega gott!! Ég dýfði kökupinnunum í hvítt súkkulaði, ég held að það þurfi annaðhvort að dýfa þeim mjög oft svo það komi þykk og falleg áferð eða einfaldlega "klæða" pinnana í fondant/sykurmassa!♥♥
Allavega, Cake pops er einfaldlega súkkulaðikaka, þú getur keypt Betty eða whatever! Þú bakar kökuna, milur hana niður og blandar kremi við þannig að þetta verði eins og nokkurskonar deig! Svo geriru litlar kúlur, gott að kæla þær aðeins svo þær verði harðari, þá er betra að setja súkkulaðið á. Ég ákvað svo að dýfa þeim í brætt hvítt súkkulaði, setti þær í fyrstinn í smá, litaði restina af súkkulaðinu með bleikum matarlit, og gerði svona ræmur yfir kúlurnar. Í lokin setti ég smá kökuskraut á þær!

Ég er semi ánægð með fyrstu tilraunina, hlakka til að gera svona næst! Held að málið sé að kaupa helmingi meira af súkkulaði, notaði 2 pakka af hvítu Cadbury (best í heimi)!!! Næst þegar ég geri þetta ætla ég að kaupa alvöru pinna (notaði grillpinna), það er hægt að kaupa þannig á mommur.is

♥♥♥
No comments:
Post a Comment