Wednesday, June 8, 2011

Veitingastaðagagnrýni vol.2


Ég elska Vegamót! Staður sem klikkar aldrei, allir finna eitthvað við sitt hæfi, fjölbreyttur matseðill og ALLt gott sem ég hef smakkað! Kósý stemning, blöð til að lesa, fljót þjónusta o.s.f.
EN
ég fór þarna um daginn með Unu vinkonu minni. Það var nú frekar mikið að gera svo ég afsaka biðina.

Í fyrsta lagi..Það var enginn sem tók á móti okkur og sagði að við þyrftum að skrá okkur á biðlista, þannig að við vorum búnar að labba um 10 mín áður en við föttuðum það. Þegar við vorum næsta að fá borð komu akkúrat eitthverjir útlendingar inn og sátust við lausa boðrið. Við biðum eftir að þau yrðu færð af þjónustufólkinu en þau gerðu það ekki, við spurðum hvort við hefðum ekki verið næstar en þær lugu að okkur að þetta fólki hefði verið að bíða eftir borði. Sem þau voru augljóslega ekki því þau komu rennandiblaut inn og fóru á fyrstaborðið sem þau sáu.

Í öðru lagi.. Var hár í súpunni hennar Unu. Súpan var samt meeega góð! En Una mátti velja sér eitthvað nýtt af matseðlinum eða fá afslátt, þetta var semsagt ekkert mál! Bara frekar ósmekklegt.

Í þriðja lagi.. Var ég sjúklega svöng í ís og fékk mér heita súkkulaðiköku með ÍS en þegar kakan kom var bara endalaust af rjóma, frekar pirrandi að enginn hafi látið okkur vita að ísinn væri búinn! Ég hefði frekar farið á kaffihúsarölt og fengið mér ís.

Ég mun samt alveg bókað fara aftur á Vegamót, þetta var nú ekki svo slæmt! Vidli bara deila þessu með ykkur þar sem ég er mikill gagnrýnandi! Vegmót fær samt bara 6 af 10 í þetta skipti.

Ruby fær 7 af 10
ps. Þórður kærastinn hennar mömmu á afmæli í dag. Til hamingju með það. Hann fékk að velja og við fórum á Ruby Tuesday, maturinn var fínn. Hamborgarnir þarna eru þeir sjúkust en salat barinn var frekar lélegur, grænmetið var búið að standa allan daginn og búið að skreppa saman. Plús það var ekkert bragð pastanu, og salsasósan var vond. Við fengum líka nachos í forrétt sem var borið fram með ostasósu, mér fannst vanta salsasósuna og kannski sýrðan
eða guacamole.

No comments:

Post a Comment