Tuesday, May 17, 2011

ulabjakkkkkkkkkkkk

stop_breastfeeding_sq.jpgMér finnst það EKKI í lagi að gefa barni sínu brjóst á almannafæri! Eða það fer soldið eftir því hvar kona er, t.d. er það engann veginn í lagi á veitingastað. Margar konur gera þetta í vinnunni hjá mér, á sólon. Þær vippa brjóstinu út og gefa barninu sínu, svo þegar barnið er búið þurfa þær að láta það ropa og barnið ælir og já þetta er of mikið subb! Afhverju geta þessar blessuðu konur ekki gefið barninu pela í þetta eina skipti? Afhverju fara þær ekki líka eitthvert afsíðis, fólk er að borða og sumum finnst þetta ógeðslegt! Ég færi nú aldrei að kippa brjóstinu mínu út á fyrir framan fullan sal af ókunnugu fólki, en það er í lagi ef ég er með lítið barn. Flestar nýbakaðar mæður eru líka með ofurvaxin brjóst með risa þrútnar ljótar geirvörtur, það er ekkert flott við það og enginn vill sjá það!

Ég var að lesa á dv.is að starfsmaður sundlaugar bannaði konu að gefa barni sínu í heitapotti, já ég er alveg sammála honum! Það er bannað að vera með mat í lauginni, og afhverju ekki að banna brjóstamjólk? Mamman varð semsagt alveg crazy og þá var starfsmaðurinn bara að bulla, það var ekkert sem að bannaði þetta!

Vinsamlegast sýnið smá tillitsemi kæru mæður, ekki vera með subbulega brjóstamjólk þegar fólk er að reyna að borða eða slaka á í heitum potti. Og í guðana bænum ekki skipta á barninu þínu á veitingastað, eins og ein kona í vinnunni gerði í gær. Hún setti barnið sitt í sófann og skipti á því!
Takk fyrir blesssssssssssssssssss
ps. takið tillit til þess að ég er ekki barnamanneskja og hefa enga þolinmæði fyrir svona.

No comments:

Post a Comment