Ég er með 3 nýjar lífsreglur þetta ár!
1. Að tipsa
2. Að gefa afmælisgjafir
3. Að djamma fyrr á kvöldin
Ég trúi mjög mikið á karma/ "what goes around comes around". Ég vil fá tips og ég vil fá afmælisgjafiir, þess vegna gef ég alltaf tips eða afmælisgjafir!
TIPS:
Eins og þeim Hildi Líf og hin þarna finnst það vanta alla VIP menningu á Íslandi, þá finnst mér vanta alla tips menningu. Afhverju gefa íslendingar aldrei smá þjórfé?
Ég get ekki lýst því hvað ég verð glöð þegar útlendingar gefa mér smá tips, þótt það sé ekki nema 100 kr. Ef þjónustan og maturinn er góður finnst mér sjálfsagt að skilja eftir smá klink á borðinu. Ég veit að Egill/Gillz er sammála mér því ég las í Mannasiðum að alvöru karlmenn leyfa leigubílstjórum og öðru þjónustufólki að eiga afganginn. Aron Pálmars er svo sannarlega alvöru karlmaður og hefur lesið Mannasiði vel því hann gaf mér 800 kr, ég mun vera ætíð þakklát. Annars eru líka til týpur eins og Helgi Ómarsson sem hafa allt, útlitið og persónuleikann og láta því viðskiptavini verða ástfangna af sér og gefa honum seðla í tugatali, en samt ekki íslendingar... Nei við Íslendingar erum svo nísk að við getum ekki borgað 200 kr fyrir góða þjónustu en getum samt borgað fyrir 5000 kr máltíð.
Afmælisgjafir:
Mér finnst fátt jafn dónalegt og að mæta í afmæli þar sem gestgjafinn er búinn að punga út peningum í mat og drykki en fær lítið sem ekkert í staðinn. Auðvitað kemur fyrir að fólk hafi lítinn tíma og á ekki peningin en það tekur enga stund að koma við í Hagkaup og kaupa lítið naglalakk eða í blómabúð að kaupa eina rós. Bæði mjög fljótlegt og ódýrt! Ég var lengi ein af þessum týpum sem var ekkert að spá í þessu en svo kynntist ég Ingþóri (kærastanum) og hann mætir alltaf með gjöf! -Ég tek hann til fyrirmynda!
Djamm:
Ég fór að spá í þessu í byrjun árs hvað bærinn væri í raun ofmetinn, flestir íslendingar safnast saman á troðnum litlum skemmtistöðum þar sem allir fara í sleik! Ég fór líka að pæla í því afhverju Íslendingar fara á djammið svona seint, jafnaldrar mínir fara niðrí bæ um 2 leitið og drekka sig blindfull í heimahúsi. Mín skemmtilegustu "djömm" eru þegar ég hef drukkið nirðí bæ í góðu tjilli, engar raðir, og dansgólfið hæfilega fullt! Hvað er líka svona gaman við að snúa sólarhringnum alveg við um helgar? Afhverju ekki að byrja að drekka fyrr og hafa meiri orku um kvöldið, ekki vera jafn þreytt eftir helgi útaf sólarhrings truflunum.

Ég held að niðurstaða mín úr þessu bloggi er að Íslendingar eru mjög nískir. Þeim finnst í lagi að spreða í góða máltíð en geta ekki gefið smá tips! Það er í lagi að mæta í afmælisveislu gjafalaus því það tekur svo mikinn tíma og kostar að gefa afmælisgjafir. Fólk drekkur sig blindfullt í heimahúsum því það er svo dýrt að drekka niðrí bæ!
ps. ég mæli með þessu


No comments:
Post a Comment