Sunday, March 6, 2011

SUMAR



Jæja! Ég er búin að fá nóg af kulda, frosti, myrkri og öllu sem fylgir vetrinum. Mig langar í SUMAR. Ég ætla að fara að koma mér í alvöru átak og komast í fyrir sundlaugarbakkann! Mig langar í litrík föt, ferska ávexti, sundlaugar, sólböð, ferðalög og allt sem tengist sumrinu. Ég meira að segja breytti útlitinu á blogginu því mér fannst það of dökkt og leiðinlegt. 

Ég póstaði svona svipuðu bloggi eitthverntímann í haust þegar ég var að auglýsa eftir milljónamæringi til að bjóða mér til útlanda, ég bað til Guðs í blogginu að ég myndi komast til útlanda fyrir jól - það varð ekki að veruleika!

Núna bið ég Guð um að ég komist til útlanda í sumar. Vandamálið er að það er enginn til að fara með mér, það eru allir að fara með eitthverjum öðrum eða eiga ekki pening.. og ég er búin að vera að safna mjög lengi þannig að ég á pening, vantar bara ferðafélaga. 




Nú auglýsi ég eftir eitthverjum sem
vill fara til útlanda að versla!

Ég setti saman það sem mig langar í af nokkrum fatasíðum! 


 SCORETT


MONKI
H&M
BIKBOK
GINA TRICOT

No comments:

Post a Comment