Þetta er ekki kvörtun heldur viðvörun!
Ég hef gert þau mistök að kaupa mér buxur í Vero Moda. Ástæðan er sú að þær eru flottar og ódýrar! ATH að þessar buxur eru í fullkomnri stærð og eru ekki að eyðileggjast vegna brussugangs. (það voru H&M buxur sem þoldu ekki single lady's dansinn)
pants nr. uno
pants nr. uno

- efnið einfaldlega gaf sig og það kom gat, innan við mánuð!
pants nr. dos


-þær byrjuðu að hnökra eftir tvö skipti, svo einn góðan veðurdag ákvað rennilásinn(sem var á rassinum) að gefa sig og nokkrir vel valdir einstaklingar sáu rassinn á mér. Núna eru þær einn stór hnökri með ónýtan rennilás.
pants nr. tres

-leðurbuxur, leðurbuxur, leðurbuxur!
Klofið rifnaði í matarboði hjá ömmu, þegar ég sat í sófanum.
Ég var búin að eiga þær í 2 vikur.
Ég er búin að sauma klofið saman 4 sinnum.
pants nr. cuatro

-Megasvalar velour buxur, fyrsta skiptið sem ég er í þeim detta báðar tölurnar af! Svo í DAG ætla ég að hífa þær upp því þær eru of víðar í mittinu og haldast aldrei uppi og þá rifnar efnið hjá rassvasanum!
Já ég er hætt að gera sömu mistökin að kaupa buxur í Vero Moda. Þær eru drasl og þola ekki neitt. Þær leka líka alltaf niður því þær eru of stórar í mittið!
ADIOS
ADIOS
No comments:
Post a Comment