Wednesday, March 2, 2011

S. Maria

Þar sem þetta blogg snýst um kvartanir, gagnrýni og hneykslanir þá ætla ég að gerast "veitingagagnrýnandi" að gamni mínu. 


Ingþór er alltaf að skamma mig fyrir að vera of gagnrýnin þegar við veljum stað til að borða á. Hann vill bara borða mat á meðan staðsetningin, útlitið, the level of cosyness, verðið og maturinn skiptir mig miklu máli. Kannski er ég svona "snobbuð" með þetta því ég vinn aðrahvora helgi við að þjóna fólki og fer þess vegna ósjálfrátt að bera alla aðra staði saman við Sólon.

Fyrir tveimur vikum fórum við Ingþór á Santa Maria, eða S. Maria eins og hann heitir víst núna. Ég hef bara heyrt gott um þennan stað en varð pínu pons fyrir vonbrigðum.

Ég ætla að byrja á því jákvæða, staðurinn er mega kósý, gott og skemmtilegt andrúmsloft, flottar skreytingar, sætir krúttlegir mexikanar/spænskir þjónar, kerti útum allt, fljót þjónusta, gott verð. 

Hinsvegar pantaði ég mér rándýrt pepsi max glas (350 kr), engir klakar og borið fram í litlu bjórglasi, semsagt hefði mátt vera í flottara glasi með klökum. Við fengum  okkur nachos í forrétt, þegar aðalréttirnir komu tók litli sæti þjónninn diskinn. Nei við vorum ekki búin, ég var að stinga nachosi uppí mig og stoppaði hann til að taka hnífpörin mín af disknum, það var svo augljóst að við vorum ekki búin. Litli sæti þjónninn var líka voða stressaður eitthvað, geðveikt fljótur að taka af borðum og hlaupandi á milli. Ingþór fékk sér burito eða eitthverja svona vefju, þetta var frekar lítill skammtur, nokkur salat blöð og lítil vefja. Ég fékk quesadilla  sem var ágætt nema kjúklingurinn var greinilega plokkaður af kjúklingnum sjálfum en ekki bara bringan, semsagt ég fékk feita kjötið af lærunum og vængjunum, sinar og svona ullabjakk. Ég gaf Ingþóri restina af matnum mínum en þá kom þjónninn og tók AFTUR diskinn án þess að spurja, og Ingþór var ekki búinn. Mér fannst matur ekkert spes.

Santa Maria fær 6.5 af 10! Ég get samt alveg hugsað mér að gefa þessum stað annað tækifæri, hef bara heyrt gott um hann. Hlýt að hafa lent á slæmu kvöldi!


No comments:

Post a Comment