Saturday, January 1, 2011

Nú í vetur hef ég átt það til að bölva og bramla í hvert skipti sem ég opna fréttablaðið eða önnur blöð/auglýsingar.

Ástæðan er einföld
Þetta er það sem ég sé

Duet II (Deluxe) - Björgvin Halldórsson

1. Hvað hugsaði hann þegar hann ákvað plötucoverið?? "hmm ég ætla að vera geðveikt hugsinn með cheap artý gleraugu", nei bjöggi minn þetta er ekki alveg að ganga.

2. Ég fer stundum að velta fyrir mér hvort hann hafi æft pósuna lengi því það geta ekkert allir lyft augabrúninni svona upp (ég prófaði það og gat ekki). 

3. Þeir sem hafa séð Tekinn með Audda átta sig líka á stjörnustælunum í honum, honum finnst hann vera stjarna alheimsins. 

4. Þessi maður er og hefur aldrei verið myndarlegur (ekki mín týpa svona ef við eigum að orða þetta betur). Þess vegna grunar mig að hann hafi gleymt að segja djók eftir þessa setningu "Ég bara óttast mest að fleiri konur muni gefa sig fram á næstu dögum á þessum örlagatímum afhjúpana" 
..sem hann sagði við Pressuna eftir að eitthver kona opinberaði ást sína.

Ástæðan fyrir þessu bloggi er samt sú að þegar ég kom heim úr vinnunni og fór í tölvuna á facebook, mbl og svo á  pressuna, rakast ég á þessa hræðilegu frétt. Fréttin fjallaði um að Björgvin Halldórsson væri búinn að hljóta riddarakross íslensku fálkaorðunnar. 
Mér finnst hann einfaldlega ofmetinn. 

æææææææjæj, en til hammó Bjöggi.

No comments:

Post a Comment