Saturday, November 27, 2010

"Nobody will ever win the Battle of the Sexes. There's just too much fraternizing with the enemy - Henry Kissinger

Ó guð kæru feministar!

Ég er orðin svo þreytt að hlusta á væl um að konur eigi svo bágt, þær fá lægri laun og balblablablalbalbalblablalblalbalba... jújú auðvitað eigum við ekki að láta neina karla vaða yfir okkur en það þýðir ekkert að vera heima og vorkenna sér.

Kæru konur sem eru að væla, hættið að gera okkur að svona miklum fórnarlömbum. Stundum fáum við kannski ekki stöðuhækkun því við erum einfaldlega ekki nógu góð í okkar starfi.
Er það ekki líka pínu lame af sumum vinnustöðum eins og bakaríum, ísbúðum og fleiri þar sem ungar stúlkur eru ráðnar en engir strákar, oft er ástæðan að ungir strákar hafa ekki þroskann í svona starf. Erum við ekki að gera nákvæmlega það sama og karlarnir?

Ég var að skrifa gagnrýni um myndina Veðramót eftir Guðnýju Halldórsdóttur, hún fékk 11 tilnefningar til Eddu verðlaunanna en vann bara ein og það var fyrir leik Jörunds Ragnarssonar.

Á visir.is segir hún: ,,Það kom ein kona þarna upp og hún var að taka við verðlaunum sem leikkona í aðalhlutverki. Þetta er greinilega bara karlaveröldin sem við búum í."

Semagt ástæðan afhverju hún vann ekki fleiri verðlaun var því hún er kona.. jú einmitt

Ég er ekkert meira fórnarlamb þótt ég sé kona og ég á ekkert bágt.
svo hættið að væla og gerið betur.

No comments:

Post a Comment