Thursday, October 7, 2010

"A lady is one who never shows her underwear unintentionally”-Lillian Day


Þetta blogg er tileinkað stelpum í íþróttabuxum með kameltó sem eru ofurölvar í snípsíðum pilsum um helgar

 

Ég las grein í Fréttablaðinu fyrir nokkrum vikum um íslenskan stílista sem vinnur í útlöndum. Hún talaði mikið um hvað íslenskar konur kynnu ekki að klæða sig og við séum mun "druslulegri" heldur konur en í öðrum þjóðum. 

Ég fór að velta þessu fyrir mér og já þetta er svo satt


Allavega ég hef verið að taka eftir þessu t.d. í kringlunni þá eru stelpur í náttbuxum, íþróttabuxum með kameló og í cintamani peysu við, brókaðir litasokkar við ljótu buxurnar, í skítugum strigaskóm, hettupeysum með ljótan arabaklút um hálsinn. 
Ég sé þetta þó aðalega hjá yngri stelpum, 93-94 og yngri. 

Ég gæti skrifað mastersritgerð um þetta en ætla ekki að gera ykkur lesendum það 


Ég var að skoða grein á pressunni sem hét "Svona er unglingatískan í dag.."
Það voru sýndar myndir af krökkum í grunnskóla, ég ákvað að eyða dýrmæta tímanum mínum í það að taka saman verstu dressin til að sýna ykkur hvað ég á við.
Þið getið lesið fréttina HÉR


Skítugir skór, brókaðir sokkar, kósí buxur, krumpaðar blússur.  

Ég dáist að dömulegu vinkonum mínum þeim Blair Waldorf og Helgu Karólínu en þær eru duglegar að skamma mig fyrir ósiði. Ungar stelpur ættu að taka þær til fyrirmynda.


Vinsamlegast ekki misskilja mig, ég ætlast ekki til að stelpur séu dressað eins og þær séu að fara á ball á hverjum degi, ég er að segja að mér finnist stelpur megi taka sig á, setja hversdags náttbuxurnar í poka og gefa rauðakrossinum. 



Jæja stelpur tökum á okkur og lærum að vera dömur 





Bækur sem allar stelpur ættu að fá í fermingagjöf


SHALOM



No comments:

Post a Comment