ÉG MISSI VITIÐ
ef ég fer ekki til útlanda
það er liðið ár síðan ég fór til útlanda og síðustu tvær utanlandsferðir innihéldu ekki verslunarferð, eða jú ég fór í búðir en ég fékk ekki að missa mig. Ég þarf að missa mig, ég á engin föt, bókstaflega engin. Fataskápurinn minn liggur á gólfinu í mjög miklu ryki, ég þarf líka að þvo minn eigin þvott núna því kallinn hennar mömmu réði ekki við að þvo svona mikið þegar hann var í fæðingarorlofi í sumar. Ég sá meirað segja pöddu á gólfinu mínu í gær, sem þýðir að ég þurfi alvarlega mikið að fara að taka til. Þetta hefur reyndar ekki böggað mig það mikið hingað til(draslið) því ég er alltaf hjá ingþóri.
Góði Guð plís leyfðu mér að komast til útlanda fyrir jól.
Góði Guð plís leyfðu mér að komast til útlanda fyrir jól.
ég er búin að liggja á síðum að skoða föt og láta mig dreyma um elskulega Stokkhólm. uppáhaldsborgin mín.
H&M

GINA TRICOT

SCORETT

MONKI

LINDEX
(semi kellinga búð en það leynist flott inná milli)

Ég auglýsi hér með eftir milljónamæringja sem vill bjóða mér til útlanda.
nauuu, ég var EINMITT í H&M, Lindex og Monki í dag :D shweet
ReplyDelete